Fara í meginmál
Bökum saman
EN

Hörpukökur

Bökum saman

Bökunarpakkar með öllum hráefnum í réttu magni — svo fjölskyldan geti bakað frá grunni, saman.

Nýbakaðir kanilsnúðar með glassúr í svörtu bökunarformi

Af hverju Bökum saman?

  • Öll hráefni í réttu magni

    Í pakkanum eru öll þurrefni sem þarf í snúðana. Þú bætir aðeins við mjólk og smjöri.

  • Minni matarsóun

    Með því að hafa aðeins rétt magn af öllum hráefnum viljum við minnka matarsóun og stuðla að umhverfisvænum bakstri.

  • Gæðastund í eldhúsinu

    Öll fjölskyldan getur tekið þátt í bakstrinum. Töfrarnir eru að sjá hráefnin verða að snúðum.

Kassi utan um Kanilsnúða með glassúr frá Bökum saman

Aðalvaran

Kanilsnúðar með glassúr

Kassi með öllum þurrefnum sem þarf í ekta kanilsnúða frá grunni. Engin tilbúin blanda úr pakka, heldur bakstur eins og hann á að vera, bara einfaldari.

Bætið bara við

  • 250 ml af mjólk eða vatni
  • 140 g af smjöri eða smjörlíki

Áhöld sem þarf: hrærivél, sleikja, matskeið, pottur, kökukefli.

Fæst í
Öllum verslunum Hagkaupa
Nettóþyngd
655 g
Geymsla
Geymist á þurrum stað
Framleiðsla
Íslensk framleiðsla

Svona gengur það fyrir sig

  1. Náðu í pakkann

    Kanilsnúðarnir fást í öllum verslunum Hagkaupa.

  2. Bakið saman

    Bætið mjólk og smjöri út í, hrærið deigið, fletjið út og rúllið upp snúðunum. Leiðbeiningarnar fylgja á kassanum.

  3. Njótið beint úr ofninum

    Glassúrinn fer yfir snúðana beint eftir bakstur, best er að borða þá volga.

Tilbúna snúða er best að geyma í vel lokuðu íláti.

  • Nærmynd af kanilsnúðum með glassúr í bökunarformi
  • Kanilsnúðakassinn á borði, merki Bökum saman efst til vinstri

Innihald og næringargildi

Upplýsingarnar hér eru þær sömu og standa á umbúðunum.

Innihaldslýsing

Hveiti (fínt malað hveiti, maltað hveiti, mjölmeðhöndlunarefni (E300)), flórsykur, sykur, púðursykur (sykur, reyrsykursíróp), kanill, þurrger (þurrkað pressuger, ýruefni (E491)), vanillusykur (flórsykur, kartöflumjöl, vanillubragðefni), salt.

Ofnæmisvaldar

  • Inniheldur glúten (hveiti).
  • Getur innihaldið snefilmagn af hnetum.

Næringargildi

 Í 100 g
Orka1575 kJ / 371 kcal
Fita0,7 g
— þar af mettuð fita0,1 g
Kolvetni82,2 g
— þar af sykurtegundir33,4 g
Prótein7,9 g
Salt0,3 g

Næringargildi á 100 g af innihaldi pakkans, án mjólkur og smjörs sem bætt er við.

Sérpantað

Ostabakkar

Fallega uppraðaðir ostabakkar fyrir veisluna, fundinn eða kósýkvöldið. Ostar, álegg, ferskir ávextir, kex og eitthvað sætt með — allt tilbúið á fatinu.

  • Settir saman fyrir hvert tilefni
  • Stærð og samsetning eftir óskum
  • Pantanir, verð og afhending í gegnum tölvupóst

Smelltu á mynd til að sjá hana stærri

Nýjungar birtast fyrst á Instagram

Þar segjum við frá árstíðabundnum pökkum, nýjum vörum og hugmyndum að því hvernig má nota þær. Jóla- og páskapakkar eru auglýstir þar þegar þeir koma í sölu.

@bokum_saman á Instagram

Sagan okkar

Fjölskyldufyrirtæki sem varð til í eldhúsinu

Bökum saman er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað til að búa til fleiri fjölskyldustundir í eldhúsinu. Hugmyndin af Bökum saman vaknaði fyrir jólin 2019 þegar við fjölskyldan vorum að baka smákökur.

Strákarnir mínir eru alltaf jafn spenntir að fá að baka frá grunni, brjóta eggin og skiptast á að setja innihald uppskriftarinnar í hrærivélina.

Vörulína Bökum saman einfaldar einstaklingum og fjölskyldum baksturinn án þess að taka frá þeim upplifunina að blanda saman hráefnum í réttri röð og töfrana sem fylgja því að sjá hráefnin verða að kökum. Pakkinn inniheldur öll hráefni sem þarf til að skapa bragðgóðar kökur frá grunni. Með því að hafa aðeins rétt magn af öllum hráefnum viljum við minnka matarsóun og stuðla að umhverfisvænum bakstri.

Harpa, stofnandi Bökum saman

Ég er þriggja barna móðir sem hef frá unga aldri haft brennandi áhuga á því að baka. Það að standa í eldhúsinu með guttunum mínum getur verið dásamleg gæðastund, hvort sem það er við eldamennsku eða við bakstur. Með Bökum saman vil ég reyna að hvetja fjölskyldur til að koma saman og baka eitthvað skemmtilegt.

HarpaStofnandi Bökum saman

Hafa samband

Heyrðu í okkur

Fyrirspurnir um ostabakka, vörurnar, samstarf eða hvaðeina annað — sendu okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og við getum.

Senda tölvupóst

harpa@bokumsaman.is

Framleiðandi

Bökum saman / HörpukökurNýbýlavegi 8200 Kópavogi